Vernd og mannúð á átakasvæðum: Áskoranir og árangur í starfi palestínska Rauða hálfmánans

Opinn hádegisfundur fimmtudaginn 3. september, þar sem Dr. Younis Al-Khatib, forseti palestínska Rauða hálfmánans mun ræða um stöðu mannúðarmála í Palestínu og þær áskoranir og árangur sem einkenna starf palestínska Rauða hálfmánans, sem og samspil við alþjóðlegan mannúðarrétt.

Opinn fundur á vegum Landsnefndar um mannúðarrétt og Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands í fundarsal Þjóðminjasafns Íslands

Á þessum opna hádegisfundi mun Dr. Younis Al-Khatib, forseti palestínska Rauða hálfmánans ræða um stöðu mannúðarmála í Palestínu og þær áskoranir og árangur sem einkenna starf palestínska Rauða hálfmánans, sem og samspil við alþjóðlegan mannúðarrétt sem Rauði krossinn og Rauði hálfmáninn standa vörð um á heimsvísu.

Opnunarávarp flytur Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneytinu og Ingibjörg Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Rauða krossins á Íslandi flytur lokaorð

Fundarstjóri: Anna Pála Sverrisdóttir, deildarstjóri þjóðréttarmála í utanríkisráðuneytinu og formaður landsnefndar um mannúðarrétt

Fundurinn er opinn öllum á meðan húsrúm leyfir og fer að mestu leyti fram á ensku. Fundurinn verður sömuleiðis sendur út í beinu streymi hér -https://www.youtube.com/live/UbSoJkg_zwc.

Boðið verður upp á léttar veitingar í lok fundar.

Landsnefnd um mannúðarrétt var stofnuð árið 2008. Hlutverk nefndarinnar er, meðal annars, að breiða út þekkingu á alþjóðlegum mannúðarrétti og vera vettvangur umræðna um alþjóðlegan mannúðarrétt. Nefndina skipa fulltrúar ráðuneyta og Rauða krossins á Íslandi, en utanríkisráðuneytið fer með formennsku í nefndinni.