Í þessari bók, sem Ásthildur Elva Bernharðsdóttir, prófessor við Háskólann á Bifröst, og Baldur Þórhallsson, prófessor við Háskóla Íslands, ritstýra, er í fyrsta sinn gerður kerfisbundin samanburður og greining á því hvernig Norðurlöndin fimm, ásamt Grænlandi og Færeyjum, brugðust við COVID-19 faraldrinum. Litið er til þess hvaða lærdóm megi draga af þessari reynslu, hvernig hún nýtist við stjórnun næstu áfalla og hvort norrænir stjórnarhættir búi nægilega vel í haginn fyrir næstu áföll í síbreytilegum og óvissum heimi.