Á fundinum verður rætt um niðurstöður þingkosninganna í Bandaríkjunum sem fram fara þriðjudaginn 3. nóvember og hvaða eftirmála þær kunna að hafa fyrir stjórnmál og utanríkisstefnu Bandaríkjanna.
Pallborðsþátttakendur flytja stutt erindi og að þeim loknum fara fram umræður þar sem gestum gefst jafnframt kostur á að bera fram spurningar úr sal.
Pallborðsumræður:
Bryndís Ísfold, stjórnmálafræðingur og aðjúnkt við Háskólann á Bifröst
Guðmundur Hálfdánarson, prófessor emeritus í sagnfræði við Háskóla Íslands
Jón Gunnar Ólafsson, lektor við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands
Svanhildur Þorvaldsdóttir, dósent við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands
Fundarstjóri: Pia Hansson, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands
Fundurinn fer fram á íslensku og eru öll velkomin.
Vinsamlegast skráið þátttöku hér: https://forms.cloud.microsoft/e/ahJy2F5i7x