16. mars 2026

Öryggis- og varnarmál í brennidepli í nýrri ritröð alþjóðamálastofnana NB8 ríkjanna

Markmið þessarar nýju ritraðar er að auka samstarf og efla greiningar- og rannsóknargetu leiðandi rannsóknastofnanana frá öllum Norðurlöndunum og Eystrasaltsríkjunum. Leitast er við að dýpka skilning á þeim öryggis-, stjórnmála- og samfélagsbreytingum sem móta Norðurlöndin og Eystrasaltssvæðið á tímum aukinnar samkeppni stórvelda.
Um ritröðina

Ritröðin er samstarfsverkefni sem samanstendur af stefnumótandi greinum (e. policy briefs) sem gefnar eru út af alþjóðamálastofnunum Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna.

Með samstarfinu er leitast við að öðlast sameiginlega innsýn í stöðu mála á sviði öryggis-, stjórnmála- og samfélagsbreytinga, stuðla að upplýstri stefnumótandi umræðu og styrkja viðnámsþrótt svæðisins.

Þau sjónarmið sem koma fram í greinunum eru á ábyrgð höfunda og endurspegla ekki endilega afstöðu stofnananna sem standa að baki samstarfinu. Nýjar greinar verða birtar á þessari vefsíðu jafnóðum.

Stofnanirnar átta sem taka þátt eru:

Sænska alþjóðamálastofnunin (The Swedish Institute of International Affairs – UI)

Danska alþjóðamálastofnunin (Danish Institute of International Studies – DIIS)

Finnska alþjóðamálastofnunin (The Finnish Institute of International Affairs – FIIA)

Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands (The Institute of International Affairs at the University of Iceland – IIA)

Eistneska alþjóðamálastofnunin (International Centre for Defence and Security – ICDS)

Alþjóðamálasofnun Háskólans í Vilnius í Litháen (The Institute of International Relations and Political Science at Vilnius University – TSPMI)

Lettneska alþjóðamálastofnunin (The Latvian Institute of International Affairs – LIIA)

Norska alþjóðamálastofnunin (The Norwegian Institute of International Affairs – NUPI)

Útgáfa

Grein nr. 1 - 16. mars 2026: Hvernig má innleiða bann við flutningi rússneskrar olíu á sjó

Fyrsta greinin í ritröðinni fjallar um hvernig mætti innleiða bann við flutningi rússneskrar olíu á sjó. Evrópusambandið íhugar að banna flutning rússneskrar olíu á sjó með banni sem næði til flutninga, trygginga, fjármögnunar og annarar tengdrar þjónustu. Í þessari grein grein er fjallað um hvernig slíkt bann á þjónustu gæti verið innleitt með árangursríkum hætti og hvernig bregðast mætti við mögulegum gagnaðgerðum Rússlands.

Höfundar:

Henrik Wachtmeister, sérfræðingur við sænsku alþjóðamálastofnunina (UI)

Daniel Spiro, dósent við Uppsalaháskóla í Svíþjóð

Henrik Praks, sérfræðingur við eistnesku alþjóðamálastofnunina (ICDS)

imagem71xc