📢 Árleg ráðstefna Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands, utanríkisráðuneytisins og Norræna hússins í samstarfi við Félag stjórnmálafræðinga og Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála verður haldin í Norræna húsinu þriðjudaginn 14. apríl næstkomandi.
🌎 Í ár eins og síðastliðin ár bjóðum við til samtals þar sem við kryfjum alþjóðamálin og þær áskoranir sem við okkur blasa í alþjóðasamfélaginu í dag.
Hlekkur að streymi: https://vimeo.com/event/5856806
09:30 – 09:40 | Setning ráðstefnu
Sabina Westerholm, forstjóri Norræna hússins
Pia Hansson, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands
09:40 – 10:20 | Öryggismál á tímamótum: Evrópa, NATO og nýjar línur í heimspólitíkinni
Boris Ruge, aðstoðarframkvæmdastjóri pólitískra málefna hjá Atlantshafsbandalaginu
Hermann Örn Ingólfsson, varaskrifstofustjóri á skrifstofu alþjóðapólitískra málefna hjá utanríkisráðuneytinu
Umræðustjóri: Elín Margrét Böðvarsdóttir, sérfræðingur á varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins
10:20 – 11:10 | Ísland á umbrotatímum: Valdapólitík, vantraust og átök í alþjóðakerfinu
Dagur B. Eggerstsson, þingmaður Samfylkingarinnar og fyrrum borgarstjóri, Jón Ólafsson, prófessor í menningarfræði og rússlandsfræðum við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands, Sesselja Sigurðardóttir, skrifstofustjóri laga- og stjórnsýsluskrifstofu utanríkisráðuneytisins, Svanhildur Þorvaldsdóttir, dósent við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, þingmaður sjálfstæðisflokksins og sérstakur erindreki um málefni úkraínskra barna í umboði framkvæmdastjóra Evrópuráðsins
Málstofustjóri: Pia Hansson, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands
11:10 – 11:25 | Kaffihlé
11:25 – 12:15 | Ísland og Norðurlönd í fókus: Innviðir, viðbúnaður og viðbragðsgeta
Erindi: Linus Owman, verkefnastjóri á sviði samfélagsöryggis og viðnámsþróttar hjá Norrænu ráðherranefndinni.
Pallborð: Hinrika Sandra Ingimundardóttir, verkefnastjóri á varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, Pétur Krogh Ólafsson, forstöðumaður sjálfbærni og öryggi innviða hjá Veitum, Árni Þór Sigurðsson, formaður Grindavíkurnefndar, og Linus Owman
Málstofustjóri: Sóley Kaldal, áhættustýringar- og öryggisverkfræðingur hjá innri endurskoðun Landsbankans
12:15 – 12:45 | Léttur hádegisverður
12:45 – 13:15 | Að grafa sig í fönn er ekki valkostur: Ísland og umheimurinn á umrótatímum
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra
Umræðustjórn: Pia Hansson, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands
13:15 – 13:30 | Kaffihlé
13:30 – 14:20 | Hvaða tækifæri og áskoranir felast í því að hefja
samningaviðræður um aðild að ESB á ný?
Brynjólfur Gauti Guðrúnar Jónsson, doktorsnemi í stærðfræði, Gunnar Þór Pétursson, deildarforseti Lagadeildar Háskólans í Reykjavík, Gylfi Magnússon, prófessor við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og Vilborg Ása Guðjónsdóttir, alþjóðastjórnmálafræðingur
Málstofustjóri: Ingólfur Bjarni Sigfússon, fréttamaður hjá RÚV
14:20 – 14:40 | Kaffihlé
14:40 – 15:30 | Þvert á landamæri: Gervigreind, upplýsingaóreiða og alþjóðleg glæpastarfsemi
Erindi: Flemming Splidsboel Hansen, sérfræðingur hjá dönsku alþjóðamálastofnuninni, DIIS
Pallborð: Hafsteinn Einarsson, dósent í tölvunarfræði við Háskóla Íslands, Katrín Sif Oddgeirsdóttir, afbrotafræðingur og sérfræðingur hjá greiningardeild ríkislögreglustjóra, Lára Herborg Ólafsdóttir, lögmaður hjá LEX lögmannsstofu og sérfræðingur í tæknirétti, Magni Reynir Sigurðsson, forstöðumaður CERT-IS og María Rún Bjarnadóttir, sérfræðingur í tæknilögfræði við lagadeild Háskólans í Reykjavík
Málstofustjóri: Davíð Logi Sigurðsson, deildarstjóri upplýsingadeildar utanríkisráðuneytisins
15:30 – 15:50 | Kaffihlé
15:50 – 16:50 | Hvert stefnum við? Fulltrúar stjórnmálaflokka ræða utanríkisstefnu Íslands
Pallborð: Dagbjört Hákonardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar, Sigurður Helgi Pálmason, þingmaður Flokks fólksins, Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins, Sigríður Á. Andersen, þingmaður miðflokksins og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins
Umræðustjórar:
Bogi Ágústsson, fjölmiðlamaður
Ólafur Þ. Harðarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands
16:50 – 17:00 | Lokaorð
Guðni Th. Jóhannesson, stjórnarformaður Alþjóðmálastofnunar, Jóns Sigurðssonar prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands, forseti Íslands 2016 – 2024
17:00 – 18:30 | Móttaka og uppistand með Birnu Rún Eiríksdóttur
Á tímum mikillar óvissu í alþjóðamálum verður sjónum beint að breyttu landslagi öryggis- og varnarmála á Norður-Atlantshafi og í Evrópu. Í málstofunni verður fjallað um helstu áskoranir og framtíðarhorfur í öryggismálum, þróun sameiginlegra varna og þær pólitísku áherslur sem móta starf og stefnu Atlantshafsbandalagsins (NATO) á komandi árum. Jafnframt verður sérstaklega hugað að hlutverki smærri bandalagsríkja. Þar verður meðal annars rýnt í hvernig Ísland geti með markvissri pólitískri þátttöku, skýrri stefnumótun og áframhaldandi stuðningi við sameiginlegar varnir lagt sitt af mörkum til aukins öryggis og stöðugleika á næstu árum.
Grafið er undan alþjóðakerfinu þar sem alþjóðalög og viðmið eru virt að vettugi. Rótgróin bandalög eru undir auknum þrýstingi vegna áframhaldandi árásarstríðs Rússlands gegn Úkraínu og aukins óstöðugleika í tengslum við átökin í Miðausturlöndum sem hefur breytt forgangsröðun í öryggis- og varnarmálum á heimsvísu. Fjölþjóðlegar stofnanir og alþjóðalög eru sniðgengin sem hefur grafið undan trausti milli Evrópu og Bandaríkjanna á sama tíma og ágreiningur um verkaskiptingu, stefnu og viðbrögð við ýmsum málum hefur magnast. Í málstofunni verður fjallað um hversu mikið Ísland getur treyst á bandalög og fjölþjóðlegar stoðir á tímum aukinnar óvissu og getu landsins til að bregðast við breyttu öryggisumhverfi, verja eigin hagsmuni og leggja sitt af mörkum í alþjóðasamstarfi.
Á tímum sem einkennast af síbreytilegri heimsmynd, óvissu í öryggisumhverfi Evrópu og aukinnar tíðni náttúruhamfara hefur mikilvægi þess að efla viðnámsþrótt samfélaga orðið sífellt brýnna viðfangsefni stjórnvalda. Í þessari málstofu verður fjallað um hvernig Ísland og hin Norðurlöndin geta unnið saman að því að verja mikilvæga innviði, tryggja samfellu í grunnþjónustu og efla viðbúnað fyrir bæði fyrirsjáanlegum og óvæntum áföllum.
Netglæpir hafa þróast í fjölþætta ógn sem teygir sig þvert á landamæri og er í auknum mæli knúin áfram af gervigreind. Á sama tíma hefur vaxandi upplýsingaóreiða, sem meðal annars stafar frá erlendum ríkjum og felur í sér dreifingu rangra eða villandi upplýsinga og áróðurs í þeim tilgangi að grafa undan áfallaþoli samfélaga og lýðræðislegum styrk, gert það að verkum að mörkin milli glæpastarfsemi, upplýsingaóreiðu og þjóðaröryggis verða sífellt óskýrari.
Í pallborðsumræðunum verður fjallað um hvernig Norðurlöndin geta eflt samvinnu til að bregðast betur við stafrænum ógnum þvert á landamæri. Þar sem gerendur, gögn og undirróðursherferðir teygja anga sína yfir ólíkar lögsögur er samhæfð nálgun í miðlun upplýsinga nauðsynleg, ásamt aukinni samræmingu og nánu samstarfi við alþjóðlega samstarfsaðila.