15. apríl 2026

The Veto í Bíó Paradís

Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi og Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands bjóða á sérstaka sýningu á heimildarmyndinni The Veto í Bíó Paradís miðvikudaginn 22. apríl
The Veto í Bíó Paradís 22. apríl kl. 19:00

Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi og Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands bjóða á sérstaka sýningu á heimildarmyndinni The Veto í Bíó Paradís miðvikudaginn 22. apríl n.k.

The Veto er áhrifamikil heimildarmynd sem varpar ljósi á neitunarvald fastra meðlima öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Í 80 ár hefur þetta vald verið stöðugt til umræðu. Þótt ólíklegt sé að neitunarvaldið verði afnumið vekur beiting þess upp alvarlegar spurningar, sérstaklega þegar því er beitt í tengslum við þjóðarmorð, stríðsglæpi og glæpi gegn mannkyni. Í myndinni ræða leiðandi sérfræðingar á alþjóðavettvangi breytingar og raunhæfar leiðir til að rjúfa pattstöðu innan öryggisráðsins og hvernig hægt sé að draga úr hættu á frekari stórátökum.

Móttaka hefst kl. 18:00, þar sem gestum gefst tækifæri til að hittast og spjalla yfir fordrykk, en sýningin hefst kl. 19:00. Að henni lokinni fara fram stuttar pallborðsumræður með leikstjóra myndarinnar, Tim Slade, og góðum gestum sem verða kynntir þegar nær dregur.

The Veto er brýn og mikilvæg heimildarmynd sem á ríkt erindi við öll sem hafa áhuga á alþjóða- og öryggismálum.

Skráningarfrestur er til og með 21. apríl. Takmarkað sætapláss í boði.
Vinsamlegast skráið þátttöku hér: Skráning á The Veto í Bíó Paradís 22. apríl