Alþjóðakerfið stendur nú frammi fyrir miklum umbreytingum sem reyna á alþjóðastofnanir, samvinnu ríkja og sameiginlega getu til að takast á við sífellt flóknari áskoranir. Þrengt er að mannréttindum, jafnréttismálum og alþjóðlegu mannúðarstarfi á sama tíma og Sameinuðu þjóðirnar glíma við skert traust, aukna pólitíska spennu og fjárhagslegan þrýsting.
Næsti aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna tekur við embætti í janúar 2027. Hvernig leiðtoga þurfa Sameinuðu þjóðirnar á að halda til að mæta þessum áskorunum og sporna við þeirri þróun sem nú blasir við? Hvaða áherslur munu skipta mestu máli á komandi árum og hvernig er hægt að efla traust á stofnuninni í sífellt flóknari heimi? Hvaða breytingar þarf að ráðast í svo Sameinuðu þjóðirnar geti áfram gegnt lykilhlutverki í að stuðla að friði, öryggi, sjálfbærri þróun og vernd mannréttinda um allan heim?
Pallborðsumræður: Svanhildur Þorvaldsdóttir, dósent í stjórnmálafræði, Gyða Margrét Pétursdóttir, prófessor í kynjafræði, Þorvarður Atli Þórsson, deildarstjóri þróunarsamvinnuskrifstofu hjá utanríkisráðuneytinu, Ingunn Lára Kristjánsdóttir, fréttamaður og verkefnastjóri fréttaþjónustu á samfélagsmiðlum RÚV og Magnús Ingi Árnason, meðlimur í ungmennahreyfingu Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi og varaformaður ungmennaráðs UN Women
Fundarstjóri Vala Karen Viðarsdóttir, framkvæmdastjóri Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi
Boðið verður upp á morgunkaffi og léttar veitingar frá klukkan 08:45, öll velkomin en vinsamlegast skráið ykkur hér