20. feb. 2026

Varnarmál, tækni og nýsköpun á óvissutímum

Miðvikudaginn 25. febrúar kl. 9:00–10:15  í Auðarsal, Veröld - Hús Vigdísar.
Opinn fundur á vegum skrifstofu nýsköpunar og hugverka við Háskóla Íslands og Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands í samstarfi við utanríkisráðuneytið.

Markmið fundarins er að efla upplýsta umræðu um hlutverk Atlatshafbandalagsins og samspil varnarmála, tækni og nýsköpunar á tímum aukinnar óvissu í alþjóðamálum. Fundurinn er hliðarviðburður við hakkaþoni á vegum Atlantshafsbandalagsins (TIDE Hackathon NATO Allied Command Transformation, ACT).
Sérstök áhersla verður lögð á lausnir með tvíþætt notagildi (e. dual-use), fjölþáttaógnir og tengsl borgaralegrar tækniþróunar og öryggissjónarmiða. Á fundinum verður jafnframt fjallað um áhrif breyttrar heimsmyndar á nýsköpunarumhverfi á Íslandi, sem og samfélagslegar og siðferðislegar áskoranir hraðrar tækniþróunar í óstöðugu alþjóðlegu umhverfi.

Fundurinn er vettvangur fyrir samtal milli stjórnvalda, fræðasamfélags og atvinnulífs um hvernig Ísland bregst við nýjum veruleika í alþjóðlegu öryggisumhverfi.

ACT er herstjórn innan NATO sem ber ábyrgð á framtíðarþróun bandalagsins, þar á meðal nýsköpun, rannsóknum og þróun þekkingar á sviði öryggis- og varnarmála. Á fundinum verður fjallað um hlutverk háskóla og rannsóknarsamfélags í þessu samhengi og þau tækifæri sem felast í auknu alþjóðlegu samstarfi.
Hakkaþonið TIDE verður haldið í Mýrinni í Grósku dagana 23. – 27. febrúar og leiðir saman sérfræðinga úr varnarmálum, tækni, gervigreind, netöryggi og nýsköpun til að þróa hagnýtar lausnir við raunverulegum áskorunum Atlantshafsbandalagsins.

Dagskrá

09:00-09:05 - Pia Hansson, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands, býður gesti velkomna

09:05–09:20 - Opnunarerindi, Patrick Ratier, yfirmaður borgaralegrar alþjóðadeildar NATO ACT og fyrrum varnamálafulltrúi Frakklands gagnvart Íslandi

09:20–10:05 - Pallborðsumræður
Sóley Kaldal, áhættustýringar- og öryggisverkfræðingur, Þorvarður Sveinsson, framkvæmdarstjóri Farice, Bjarki Þór Sigvarðsson, fagstjóri yfir ástandsvitund hjá CERT-IS og Jón Geir Pétursson, prófessor í umhverfis- og auðlindafræði.
Málstofustjóri er Bjarni Bragi Kjartansson, alþjóðastjórmálafræðingur.

10:05–10:15 - Lokaorð, Silja Bára Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands

Fundurinn fram á íslensku, að undanskildu erindi Patrick Ratier
Boðið verður upp á léttar veitingar frá kl 8:30

Öll velkomin. Vinsamlegast skráið þátttöku hér
https://forms.office.com/e/7Rr1VCHjG9