The Imagine Forum: From Cold War Lessons to Modern Challenges

Ekki missa af árlegu friðarráðstefnunni okkar, The Imagine Forum, mánudaginn 12.október. Í tilefni þess að í ár eru 40 ár liðin frá hinum sögulega leiðtogafundi í Höfða verður litið til fortíðar og rætt hvaða lærdóm megi draga af þeim tímamótafundi. Geta ríki enn unnið að diplómatískum lausnum á tímum vaxandi spennu í heiminum? Hver er framtíð alþjóðlegra afvopnunarsamninga og friðarumleitana?

Komdu og hlustaðu á einvala lið sérfræðinga víða að úr heiminum ræða um mikilvægi samvinnu, trausts og friðaruppbyggingar á tímum vaxandi spennu og óvissu í varnar-, öryggis- og afvopnunarmálum.

Meðal fyrirlesara eru:

◆ Halla Tómasdóttir, forseti Íslands
◆ Nataša Pirc Musar, forseti Slóveníu
◆ Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra
◆ Volker Türk, mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna
◆ Christiane Amanpour, þáttastjórnandi og aðalfréttaskýrandi CNN í alþjóðamálum
◆ Mary Robinson, fyrrum forseti Írlands og fyrrum mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna
◆ Izumi Nakamitsu, framkvæmdastjóri afvopnunarmála hjá Sameinuðu þjóðunum
◆ Sergey Radchenko, Wilson E. Schmidt prófessor við Johns Hopkins School of Advanced International Studies
◆ Carlo Masala, prófessor og forstöðumaður CIIS við við Bundeswehr-háskólann í München
◆ Tom Blanton, forstöðumaður National Security Archive við George Washington-háskóla í Washington, D.C.
◆Francis J. Gavin, Giovanni Agnelli prófessor og framkvæmdastjóri Henry A. Kissinger Center for Global Affairs við Johns Hopkins University
◆ Hindou Oumarou Ibrahim, umhverfisverndarsinni og landfræðingur frá Tjad
◆Sara Olsvig, fyrrum formaður the Inuit Circumpolar Council
◆Isabel Bramsen, forstöðumaður Peace and Conflict Studies við háskólann í Lundi

Nánari dagskrá verður kynnt síðar en skráning fer fram hér