Meira um friðarráðstefnuna má finna hér
Upptöku af ráðstefnunni má nálgast hér!
Árleg friðarráðstefna Höfða Friðarseturs sem ber heitið Fostering Dialogue for Peace í ár, mun vera haldinn í Iðnó 10 október, 2024, milli 10:00-17:00.
í ár verður lögð áhersla á að skoða hvernig við getum stuðlað að opinskáu samtali um friðarferla og friðaruppbyggingu.
Ráðstefnan er haldin af Höfða friðarsetri, Reykjavíkurborg og Háskóla Íslands í samstarfi við utanríkisráðuneytið.
Stigmögnun átaka og spenna í alþjóðakerfinu samhliða hnignun lýðræðislegra gilda, hefur grafið undan þeim alþjóðastofnunum og alþjóðalögum sem komið var á eftir hörmungar síðari heimsstyrjaldarinnar.
Hvernig getum við unnið að friði í óstöðugum heimi?
Á þessum viðsjárverðu tímum er brýn þörf á að skoða núverandi friðarferla og friðarumleitanir á opinskáan og gagnrýninn hátt. Hvernig getum við unnið að friðsamlegum lausnum átaka þegar hriktir í stoðum þeirra grunngilda sem alþjóðakerfið byggir á? Eru þær aðferðir sem notast hefur verið við hingað til að virka eða þarf að hugsa friðarferla upp á nýtt?
Friðarráðstefnan í ár samanstendur af fjórum málstofum sem snúa með ólíkum hætti að mikilvægi þess að stuðla að samtali í þágu friðar. Lagt verður upp með að leiða saman alþjóðlega sérfræðinga, fræðafólk og opinbera embættismenn sem hafa starfað við friðarumleitanir.
Við hlökkum til að sjá ykkur á friðarráðstefnunni 2024.