Sterkari saman: Tengsl Kanada, Íslands og Evrópu

Opinn fundur á vegum Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands og sendiráðs Kanada á Íslandi í fundarsal Þjóðminjasafnsins þriðjudaginn 22. september klukkan 14:30 – 15:45.

Eftir að hafa verið í fararbroddi meðal NATO-ríkja í baráttunni gegn loftslagsbreytingum hafa Ísland og Kanada eflt samstarf sitt enn frekar á undanförnum árum. Forsætisráðherra Kanada sótti árlegan sumarfund norrænna leiðtoga á Íslandi árið 2023. Í kjölfarið var haldinn leiðtogafundur í Ósló fyrr á þessu ári þar sem forsætisráðherrar Norðurlandanna og Kanada komu saman. Síðan þá, samhliða sífellt stærra hlutverki Kanada á alþjóðavettvangi, hafa leiðtogar Kanada, Íslands og fleiri ríkja í Evrópu haldið áfram að dýpka tengslin.

John Kirton, prófessor emeritus í stjórnmálafræði við Háskólann í Toronto, telur að Kanada og Ísland geti og ættu að efla samvinnu sína enn frekar. Á opnum fundi í Þjóðminjasafninu mun Kirton ræða hvernig nánari tengsl og aukið samstarf Íslands og Kanada geta gagnast ekki aðeins ríkjunum tveimur, heldur einnig norrænum og evrópskum samfélögum, Norður-Atlantshafssvæðinu og heimsbyggðinni allri.

Fundarstjóri er Eliza Reid, rithöfundur og fyrrverandi forsetafrú, auk þess sem Silja Bára R. Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, og Jenny Hill, sendiherra Kanada á Íslandi, taka til máls.

Viðburðurinn er öllum opinn, en við biðjum ykkur vinsamlegast um að skrá ykkur hér.

Fundarsalur Þjóðminjasafnsins, þriðjudaginn 22. september klukkan 14:30.