Innflytjendastefna Kanada hefur oft verið fyrirmynd fyrir önnur ríki og litið á Kanada sem vígi fjölmenningar. Hins vegar hafa viðhorf almennings til innflytjenda orðið neikvæðari á undanförnum misserum og nýlega hafa markmið stefnunnar verið dregin saman. Málefni innflytjenda og flóttafólks voru einnig í forgrunni í nýlegum kosningum á Íslandi, þar sem umræður um innflytjendastefnu afhjúpuðu mismunandi sjónarmið um þetta viðkvæma og flókna málefni.
Í þessari málstofa verður sjónum beint að stöðu og þróun innflytjendastefnu Kanada og Íslands og skoðað hvaða lærdóm má draga af reynslu hvors lands.
Jenny Hill, sendiherra Kanada á Íslandi, mun opna málstofun. Mireille Paquet, dósent við Concordia-háskóla og rannsóknarstjóri um stjórnmál innflytjendamála, mun halda erindi. Eftir það fara fram pallborðsumræður. Þátttakendur í pallborði eru Nína Helgadóttir, teymisstjóri hjá Rauða krossi Íslands, Paola Cardenas, formaður Innflytjendaráðs Íslands og Unnur Dís Skaptadóttir, prófessor í mannfræði við Háskóla Íslands.
Málstofustjóri er Pia Hansson, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands.