Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi í samstarfi við utanríkisráðuneytið, forsætisráðuneytið, Barna- og ungmennaráð heimsmarkmiða SÞ og Höfða friðarsetur Reykjavíkurborgar og Háskóla Íslands boðar til samtals um Sáttmála framtíðarinnar fimmtudaginn 6. júní frá klukkan 17:00- 19:00 í Mannréttindahúsinu.
Dagana 22.-23. september nk. verður Leiðtogafundur um framtíðina (e. Summit of the Future) haldinn í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York þar sem leiðtogar heimsins koma saman til að samþykkja nýtt alþjóðlegt samkomulag um hvernig við bætum samtíð okkar og tryggjum gæfuríkari framtíð. Hið nýja samkomulag, Sáttmáli framtíðarinnar (e. Pact for the Future) er einstakt tækifæri til að endurheimta það traust sem hefur glatast og sýna fram á að með alþjóðlegri samvinnu sé hægt að takast á við þær sameiginlegu áskoranir sem heimurinn stendur frammi fyrir.Á þessum samtalsfundi verða drög sáttmálans kynnt og þemu hans rædd í umræðuhópum. Viðburðinum er þannig ætlað að auka þekkingu á málefnum Leiðtogafundarins og um Sáttmála framtíðarinnar, stuðla að áhugaverðum umræðum sem virkja þátttöku ungs fólks og borgarasamfélagsins og valdefla þessa hópa í málefnum sem þau varðar.
Dagskrá
17:00-17:10 Opnunarorð Vala Karen Viðarsdóttir, framkvæmdastjóri Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi og Sara Júlía Baldvinsdóttir, ungmennafulltrúi á sviði sjálfbærrar þróunar
17:10- 17:30 Leiðtogafundur framtíðarinnar: Fjölþjóða lausnir í þágu betri framtíðar Jörundur Valtýsson, fastafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum
17:30- 17:50 Örkynningar tengdar þemum Sáttmála framtíðarinnar. Svanhildur Þorvaldsdóttir, lektor við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands, Fannar Logi Waldorf, fulltrúi úr Barna- og ungmennaráði heimsmarkmiða SÞ, Sylvía Martinsdóttir, forseti LUF, og Ásgeir Brynjar Torfason, doktor í fjármálum og ritstjóri Vísbendingar.
17:50-18:00 Kaffihlé
18:00-18:40 Umræðuhópar um þemu samningsins
18:40 -19:00 Umræðustjórar kynna stuttlega niðurstöður umræðuhópa
19:00 - 20:00 Pizzur og spjall