20. feb. 2026

Frá þekkingu til þróunaráhrifa: Aðför að jafnrétti

Þriðji fundur í fundarröð sem varpar ljósi á starf GRÓ skólanna fór fram þann 3. mars
Jafnréttisskóli GRÓ, GRÓ-GEST

Frá þekkingu til þróunaráhrifa er yfirskrift fundarraðar á vegum Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands, Utanríkisráðuneytisins og GRÓ - þekkingarmiðstöðvar um þróunarsamvinnu. Fundaröðinni er ætlað að varpa ljósi á framlag Íslands til eflingar mannauðs og velferðar í samvinnulöndum í gegnum GRÓ - þekkingarmiðstöð og GRÓ skólanna fjóra, jarðhitaskólann, sjávarútvegsskólann, jafnréttisskólann og landgræðsluskólann. GRÓ er lykilstofnun í þróunarsamvinnu Íslands og starfar undir merkjum UNESCO. Á þessum þriðja fundi var sjónum beint að hlutverki Jafnréttisskólans (GRÓ-GEST). Áður hefur verið fjallað um Jarðhitaskólann (GRÓ-GTP) og Sjávarútvegsskólann (GRÓ-FTP).

Síðasti fundurinn verður haldinn 7. maí og verður þá fjallað um Landgræðsluskólann (GRÓ-LRT). Við hvetjum áhugasama til þess að fylgjast, nánari upplýsingar verða veittar síðar.

Jafnréttisskóli GRÓ, GRÓ-GEST, þjálfar og menntar sérfræðinga í lág- og millitekjuríkjum, sem og frá átakasvæðum, og stendur fyrir fjölbreyttum jafnréttisverkefnum og -rannsóknum í samstarfslöndum skólans. Á fundinum deildu nemendur reynslu sinni og sýn á mikilvægi námsins í alþjóðlegu samhengi og ræddu áskoranir sem þau standa frammi fyrir þegar teikn eru á lofti um bakslag á sviði kynja- og hinsegin réttinda víða um heim.

Frá stofnun hefur GRÓ-GEST, sem starfar innan Háskóla Íslands, útskrifað hátt í 300 nemendur frá rúmlega 40 ólíkum löndum. Að auki styður skólinn við alþjóðlegt tengslanet fyrrverandi nemenda, sem starfa hjá opinberum stofnunum, fyrirtækjum, frjálsum félagasamtökum, háskólum og alþjóðastofnunum í heimalöndum sínum. Fyrrum nemendur eiga það sameiginlegt að fara fyrir verkefnum sem ætlað er að stuðla að auknu félagslegu réttlæti hvort sem er í gegnum umbætur í stefnumótun, uppbyggingu stofnana, rannsóknir eða önnur samfélagsleg verkefni.

Á fundinum var fjallað um hvernig efling þekkingar og hæfni í jafnréttismálum tengist með beinum hætti aukinni hagsæld og velferð. Spurt var hvernig unnt er að byggja upp og viðhalda traustri og trúverðugri sérþekkingu á sviði jafnréttismála í síbreytilegu alþjóðlegu umhverfi? Með hvaða hætti eru sérfræðingar færir um að mæta pólitískum, félagslegum og menningarlegum áskorunum sem geta hamlað framförum í jafnréttismálum?

Á þessum opna fundi fengum við svör við spurningum sem þessum og heyrðum frá nemendum sem miðluðu reynslu sinni af Jafnréttisskólanum og sýn á Jafnréttismál í alþjóðlegu samhengi.

Hægt er að sjá fundinn í heild sinni hér:

Fram komu:

Silja Bára Ómarsdóttir rektor Háskóla Íslands, bauð gesti velkomna og Martin Eyjólfsson ráðuneytisstjóri hjá utanríkisráðuneytinu flutti opnunarerindi. Þá tók Irma Erlingsdóttir, prófessor og forstöðumaður jafnréttisskólans til máls og fjallaði um Endurheimt kynjajafnréttis á tímum bakslags og skautunar. Aðalerindi flutti Yeshiwas Degu Belay, fyrrum GRÓ GEST nemi og doktorsstyrkþegi sem stundar nám við Háskóla Íslands og Erasmus-háskólann í Rotterdam. Hann fjallaði um reynslu sína og í kjölfarið var spilað myndskeið þar sem innsýn var gefin í reynslu fleiri nemenda víða að úr heiminum. Að því loknu hófust pallborðsumræður. Pallborðinu stýrði Thomas Brorsen Smidt, námsstjóri GRÓ GEST og pallborðið skipuðu fyrrum nemendur GRÓ-GEST: Aarti Lila Ram, aðstoðarframkvæmdastjóri hjá Engro Foundation í Pakistan, Thelma Kaliu, einn stofnanda GenHub í Malaví, Mohamed Altamash Khan, yfirþjálfari hjá Men Against Violence & Abuse á Indlandi, og Yeshiwas Degu Belay. Fundinum lokaði Nína Björk Jónsdóttir, forstöðumaður GRÓ - þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu með nokkrum orðum og kynnti inn lokaræðu núverandi nemenda Saman, áfram!

Myndir: Kristinn Ingvarsson