Fagnaðu með okkur á lokadegi Snjallræðis 15. desember í Grósku!
Á þessari uppskeruhátíð munu teymin sem hafa tekið þátt í Snjallræði síðustu 16 vikur kynna hugmyndir sínar og afrakstur síðustu mánaða.
Þetta er frábært tækifæri til að kynnast frumkvöðlum sem brenna fyrir því að leita lausna á aðkallandi áskorunum samtímans.
Markmið vaxtarýmisins Snjallræðis, sem nú er haldið í fimmta sinn, er að styðja við nýsköpunarteymi sem vilja láta gott af sér leiða og stuðla að framgangi heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna. Þungamiðja Snjallræðis eru vinnustofur á sviði nýsköpunnar og hönnunarhugsunar sem haldnar eru í samstarfi við MITdesignX og Svöfu Grönfeldt.
Dagskrá
13:00 Opnunarorð Pia Hansson, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunnar Háskóla Íslands og Oddur Sturluson, verkefnisstjóri Snjallræðis
13:05 Opnunarerindi Svafa Grönfeldt, ein af stofnendum MITdesignX
13:10 Lokakynningar sprotafyrirtækjanna
- Bragðlaukaþjálfun: miðar að því að draga úr matvendni barna með gagnreyndum aðferðum sem efla fjölskyldur og gefa þeim tækifæri til að eiga jákvæðar og styrkjandi samverustundir kringum mat og matmálstíma
- Co-living Iceland: an AI driven matchmaking platform connecting individuals with their ideal house and housemates in Iceland
- Eldrimenntun: leiðir saman eldri Íslendinga og innflytjendur á öllum aldri til að styðja við íslenskunám, draga úr félagslegri einangrun og auka gagnkvæman skilning á ólíkri menningu
- Fine Food Íslandica: seaweed collective that builds a regenerative seaweed industry by growing seaweed in collaboration with coastal communities, contributing to climate actions through sustainable food production and equitable partnerships.
- Jafningjahús: annar valkostur fyrir fólk í geðrænni krísu
- Opni leikskólinn: öruggur, ókeypis og bjóðandi staður þar sem foreldrar og börn geta leikið saman, kynnst öðrum og fengið fræðslu
- Svepparíkið: þróar nýjar svepparæktunaraðferðir með einstöku 7 þrepa kerfi, sem byggja á nýtingu niðurbrjótanlegra hliðarstrauma frá fjölbreyttum iðnaði með sjálfbærni og hringrásarhagkerfið í huga til að takast á við áskoranir nútímans
- Weave Together Foundation: is committed to fostering the integration and well-being of refugees and asylum seekers, enhancing their self-dependency and dignity, and expediting their employment through a specialized vocational training program during their waiting period
Pallborð Elva Rakel Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Festu, Haukur Hafsteinsson, yfirverkfræðingur hjá Marel og Edda Konráðsdóttir, stofnandi Iceland Innovation Week
14:20 Ávarp og veiting viðurkenninga Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, forseti borgarstjórnar Reykjavíkur
14:45 Lokaorð Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
Fundarstjóri Sveinn Kjarval, viðburðastjóri hjá Marel
Léttar veitingar verða í boði að dagskrá lokinni.
Við hvetjum þig til að skrá þig til að tryggja sæti. Skráning fer fram hér!
Hvenær: Föstudaginn 15. desember kl. 13:00-15:00
Hvar: Gróska Hugmyndahús
Við hlökkum til að sjá þig á lokadegi Snjallræðis!