Nr. 6 - október 2026
Höfundar:
Dana Dūda
Konstantinas Andrijauskas
Björn Cappelin
Í þessari skýrslu er fjallað um hvernig Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin (NB8) geta dregið úr því hversu háð þau eru Kína í orkuskiptunum. Skoðað er hvernig aðfangakeðjur fyrir hreina orku, mikilvæg jarðefni og öryggismál á norðurslóðum tengjast innbyrðis og bent á stefnumótandi veikleika sem skapast vegna áhrifa Kína í efnahagsmálum, tækni og innviðum. Mælt er með nánara svæðisbundnu samstarfi, auknum upplýsingaskiptum á sviði öryggis- og leyniþjónustumála, samræmdum innkaupum og fjölbreyttari aðfangakeðjum, til að draga úr áhættu og efla viðnámsþol Norðurlanda og Eystrasaltsríkja.