Vinnustofan fór fram á Háskólatorgi, stofu HT-103 í Háskóla Íslands, þriðjudaginn 27. maí 2025 frá kl. 9:30–17:00.
Markmiðið með vinnustofunni var að skapa opinn vettvang fyrir samtal um helstu þekkingargöp og rannsóknargetu hérlendis, auk þess að kortleggja og ræða hvernig rannsóknarsamfélagið getur mætt þeim áskorunum og nýtt þau tækifæri sem tengjast aðlögunum að loftslagsbreytingum. Vinnustofan miðaði jafnframt að því að efla vísindasamstarf innanlands og styrkja sókn íslenskra aðila í erlenda samkeppnissjóði.
Háskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri, Norðurslóðanet Íslands og Rannís stóðu að vinnustofunni í samstarfi við Loftslagsráð, og markaði hún upphaf verkefnisins Norðurslóðarannsóknir á Íslandi sem miðar að því að efla samtal og samráð rannsóknarumhverfisins hérlendis um málefni norðurslóða og er fjármagnað af samstarfssjóði háskóla á vegum Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins.
Kristmundur Þór Ólafsson, sérfræðingur hjá Rannsóknarsetri um norðurslóðir, Háskóli Íslands
Tom Barry, forseti Hug- og félagsvísindasviðs Háskólans á Akureyri
Elín Björk Jónasdóttir, sérfræðingur á skrifstofu loftslags- og náttúru, Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Halldór Björnsson, formaður vísindanefndar um loftslagsmál
Björg María Oddsdóttir, sérfræðingur á rannsókna- og nýsköpunarsviði Rannís
Egill Þór Níelsson, sérfræðingur á rannsókna- og nýsköpunarsviði Rannís
Svandís Ósk Símonardóttir, sérfræðingur á rannsókna- og nýsköpunarsviði Rannís
Elín Jónsdóttir, lektor og fagstjóri við Lagadeild Háskólans á Bifröst
Guðfinna TH. Aðalgeirsdóttir, prófessor við Jarðvísindadeild Háskóla Íslands
Hlynur Stefánsson, prófessor við Verkfræðideild Háskólans í Reykjavík
Jóhanna Gísladóttir, lektor við Landbúnaðarháskóla Íslands
Marteinn Sindri Jónsson, aðjúnkt við Hönnunardeild Listaháskóla Íslands
Matthias Kokorsch, fagstjóri Háskólaseturs Vestfjarða
Skúli Skúlason, prófessor við Fiskeldis- og fiskalíffræðideild Háskólans á Hólum
Tom Barry, forseti Hug- og félagsvísindasviðs Háskólans á Akureyri
Gunnar Stefánsson, aðstoðarrektor Vísinda, UArctic
Kristmundur Þór Ólafsson, sérfræðingur hjá Rannsóknarsetri um norðurslóðir, Háskóli Íslands
Tom Barry, forseti Hug- og félagsvísindasviðs Háskólans á Akureyri