Hildur Björnsdóttir

Hildur Björnsdóttir

Borgarstjóri Reykjavíkur

Hildur Björnsdóttir hefur verið borgarstjóri Reykjavíkur frá júní 2026 og setið í borgarstjórn frá 2018. Hún er lögfræðingur og stjórnmálafræðingur að mennt og hefur meðal annars setið í borgarráði, umhverfis- og skipulagsráði og skóla- og frístundaráði, en auk þess hefur hún gegnt stjórnarsetu í Orkuveitu Reykjavíkur, Faxaflóahöfnum og Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Hún er með BA-próf í lögfræði og stjórnmálafræði og MA-próf í lögfræði frá Háskóla Íslands og öðlaðist réttindi sem héraðsdómslögmaður árið 2012.