Christiane Amanpour er þáttastjórnandi og aðal fréttaskýrandi CNN í alþjóðamálum, og er hún m.a. stjórnandi margverðlaunaða fréttaskýringaþáttarins Amanpour, sem er einnig sýndur á PBS. Hún stýrir jafnframt The Amanpour Hour, þar sem hún tekur ítarleg viðtöl við áhrifafólk úr stjórnmálum, menningu og samfélagi.
Amanpour hóf störf hjá CNN árið 1983 og á yfir fjögurra áratuga feril sem alþjóðlegur fréttamaður. Hún hefur fjallað um alþjóðlegar kreppur og tekið viðtöl við fjölda leiðtoga um allan heim. Hún hefur hlotið fjölda virtustu blaðamannaverðlauna, þar á meðal 16 Emmy-verðlaun og fjögur Peabody-verðlaun.
Hún stýrir einnig hlaðvarpinu The Ex-Files ásamt fyrrverandi eiginmanni sínum, Jamie Rubin, þar sem þau ræða alþjóðamál út frá sjónarhornum blaðamanns og fyrrverandi embættismanns.