volker turk (2)

Volker Türk

Mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna

Volker Türk hefur verið mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna (UN High Commissioner for Human Rights) frá október 2022. Herra Türk hefur helgað starfsferil sinn mannréttindamálum, einkum réttindum flóttafólks og ríkisfangslausra einstaklinga.

Áður en hann tók við embætti mannréttindafulltrúa gegndi hann ýmsum háttsettum störfum innan Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR), þar á meðal sem aðstoðarflóttamannafulltrúi með ábyrgð á verndarmálum. Þar gegndi hann lykilhlutverki við mótun alþjóðasamkomulagsins um flóttafólk (Global Compact on Refugees).

Herra Türk er með doktorsgráðu í þjóðarétti frá Háskólanum í Vín og hefur birt fjölda rita um flóttamannarétt og mannréttindalög.