Izumi Nakamitsu MYND (1)

Izumi Nakamitsu

Aðstoðarframkvæmdastjóri SÞ og framkvæmdastjóri afvopnunarmála

Izumi Nakamitsu hefur verið aðstoðarframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna og æðsti fulltrúa SÞ í afvopnunarmálum frá árinu 2017. Hún hefur víðtæka reynslu af friðargæslu, friðaruppbyggingu, mannúðarmálum og alþjóðasamskiptum og hefur gegnt ýmsum háttsettum stöðum hjá Sameinuðu þjóðunum.

Áður en hún tók við núverandi starfi starfaði hún hjá Þróunaráætlun Sameinuðu þjóðanna (UNDP) og var prófessor í alþjóðasamskiptum við Hitotsubashi-háskóla í Tókýó. Hún er með meistaragráðu í utanríkisþjónustu (Master of Science in Foreign Service) frá Georgetown-háskóla og BA-gráðu í lögfræði frá Waseda-háskóla.