Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hefur gegnt embætti utanríkisráðherra Íslands frá 21. desember 2024. Hún hefur setið á Alþingi frá árinu 1999, með hléi á árunum 2013–2016, og hefur verið formaður Viðreisnar frá árinu 2017. Áður gegndi hún embætti menntamálaráðherra á árunum 2003–2009 og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra árið 2017. Hún var einnig forstöðumaður mennta- og nýsköpunarsviðs Samtaka atvinnulífsins á árunum 2013–2016. Þorgerður Katrín er með lögfræðipróf frá Háskóla Íslands.