Erlingur Erlingsson

Erlingur Erlingsson

Gestafræðimaður

Erlingur Erlingsson er gestafræðimaður við Alþjóðamálastofnun. Hann hefur starfað allan sinn feril að málefnum tengdum alþjóðamálum, með áherslu á varnar- og öryggismál. Áhersla hans er á umfjöllun um og rannsóknir á strategískum málefnum og varnarmálum á breiðum grundvelli, m.a. NATO, Atlantshafstengslin, íslensk varnarmál, og svæðisbundin öryggismál.

Á löngum ferli innan íslensku utanríkisþjónustunnar hefur Erlingur starfað sem staðgengill sendiherra í sendiráði Íslands í Bandaríkjunum, fulltrúi Íslands í herstjórn NATO í Norfolk í Virginíu, sem næstráðandi Íslensku friðargæslunnar, auk þess að sinna málefnum Mið-Austurlanda, Sameinuðu Þjóðanna, og starfa á Varnarmálaskrifstofu ráðuneytisins. Erlingur var ráðgjafi yfirherstjórnar NATO í Kabúl í Afganistan í stöðugleika- og þróunarmálum og stjórnmálafulltrúi Sameinuðu Þjóðanna í landinu innan UNAMA. Eftir að hann lauk störfum innan utanríkisþjónustunnar hefur Erlingur starfað að málefnum er varða tækni, mannréttindi og alþjóðamál, fyrst innan Meta og nú sem ráðgjafi Google.

Erlingur var gestafræðimaður frá 2017 til 2018 við Center for Transatlantic Relations, í Johns Hopkins University Paul H. Nitze School of Advanced International Studies (SAIS). Þar beindi hann sjónum sínum að Atlantshafstengslunum og samstarfi Norðurlandanna á sviði öryggis- og varnarmála. Erlingur er með MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík, BA gráðu í sagnfræði og fjölmiðlun frá Suffolk háskóla í Boston, og lagði stund á doktorsnám í hernaðarsögu við Oxfordháskóla.