Þorsteinn Kristinsson er sérfræðingur hjá Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands. Hann er fræðimaður í alþjóðasamskiptum með aðsetur í Taipei, Taívan. Þorsteinn sérhæfir sig í stórveldasamkeppni og þróun alþjóðaskipanar, auk alþjóðasamskipta í Austur-Asíu. Hann hefur jafnframt stundað rannsóknir og skrif á sviði smáríkjafræða. Í nýjustu rannsóknum sínum leitast Þorsteinn við að skýra hlutverk smáríkja í að móta og viðhalda ríkjandi alþjóðaskipan.
Þorsteinn hefur kennt ýmis námskeið á sviði alþjóðastjórnmálahagfræði, kenningum í alþjóðasamskiptum, sem og megindlegum rannsóknaraðferðum. Hann hefur jafnframt leiðbeint meistararitgerðum við bæði Háskóla Íslands og Lundarháskóla. Auk fræðistarfa hefur Þorsteinn haldið fyrirlestra fyrir ráðuneyti, bæði á Íslandi og í Taívan, auk þess að skrifa greinar um alþjóðamál fyrir almenning.
Þorsteinn er með M.Sc. gráðu í Asíufræðum og doktorsgráðu í stjórnmálafræði frá Lundarháskóla í Svíþjóð. Hann hefur jafnframt hlotið Taiwan Fellowship styrk frá utanríkisráðuneyti Taívans og gegndi stöðu gestafræðimanns við National Taiwan University.