Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands, Varðberg – samtök um vestræna samvinnu og alþjóðamál, Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands og Félag stjórnmálafræðinga stóðu fyrir kosningafundi um utanríkis- og varnarmál í Auðarsal, Veröld - húsi Vigdísar, fimmtudaginn 14. nóvember 2024.
🗳 Upptöku frá kosningafundi um utanríkis- og varnarmál má nálgast hér að neðan.
📢 Á fundinum komu fram fulltrúar allra stjórnmálaflokka sem bjóða fram í öllum kjördæmum í komandi kosningum og ræddu stefnu sína í utanríkis-, öryggis- og varnarmálum.
Rakel Þorbergsdóttir og Bogi Ágústsson stjórnuðu umræðum.
Á tímum mikilla breytinga og áskorana í alþjóðasamfélaginu er mikilvægt að kjósendur fái skýra mynd af stefnu flokkanna í varnar- og öryggismálum.
Alþjóðastjórnmál samtímans einkennast af fjölbreyttum áskorunum og aukinni spennu í samskiptum stórveldanna. Hörð átök ógna öryggi víðsvegar um heim á sama tíma og fólksflótti eykst og stórfelldra aðgerða er þörf til að sporna gegn loftslagsvánni. Hnignun lýðræðislegra gilda og auknir einsræðistilburðir valda einnig óvissu um framtíð frjálslynds lýðræðis. Hvaða afleiðingar hefur þessi breytta heimsmynd í för með sér fyrir íslenska utanríkisstefnu? Hvernig ætla stjórnmálaflokkarnir að bregðast við þeim áskorunum sem við stöndum frammi fyrir á alþjóðasviðinu?
🔸Arnar Þór Jónsson, oddviti Lýðræðisflokksins í Suðvesturkjördæmi
🔸Eyjólfur Ármannsson, oddviti Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi
🔸Hanna Katrín Friðriksson, oddviti Viðreisnar í Reykjavíkurkjördæmi norður
🔸Jóhann Friðrik Friðriksson, í 3. sæti Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi
🔸Gunnar Smári Egilsson, oddviti Sósíalista í Reykjavíkurkjördæmi norður
🔸Gísli Rafn Ólafsson, í 2. sæti Pírata í Suðvesturkjördæmi
🔸Rósa Björk Brynjólfsdóttir, í 2. sæti VG í Reykjavíkurkjördæmi norður
🔸Sigríður Á. Andersen, oddviti Miðflokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður
🔸Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, í 2. sæti Sjálfstæðisflokks í Suðvesturkjördæmi
🔸Þórunn Sveinbjarnardóttir, í 3. sæti Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi
Fundarstjórar Bogi Ágústsson, fréttamaður RÚV, og Rakel Þorbergsdóttir, fyrrverandi fréttastjóri RÚV