Umhverfisvernd-og-sjálfbær-nýting-ams.is-2

Umhverfisvernd og sjálfbær nýting auðlinda

Taktu daginn frá!

Vinnustofa um umhverfisvernd og sjálfbæra nýtingu á auðlindum fer fram í Háskólanum á Akureyri þann 11. nóvember 2026 frá kl. 8:30–16:00.  

Markmið vinnustofunnar er að skapa opinn vettvang fyrir samtal um helstu áskoranir og rannsóknargetu hérlendis í tengslum við umhverfisvernd og sjálfbæra nýtingu auðlinda. Einnig er leitast við að styrkja sókn íslenskra aðila í erlenda samkeppnissjóði.

Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Norðurslóðanet Íslands og Rannís standa að vinnustofunni sem er sú fjórða og síðasta í röð vinnustofa innan verkefnisins Sterkari staða Norðurslóðarannsókna á Íslandi. Vinnustofuröðin miðar að því að efla samtal og samráð rannsóknarumhverfisins hérlendis um málefni norðurslóða og er fjármagnað af samstarfssjóði háskóla á vegum menningar- nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins. 


Ferðastyrkir verða í boði fyrir þátttakendur frá menntastofnunum utan Akureyrar. 

Dagskrá og nánari upplýsingar verða birtar síðar. Athugið að vinnustofan fer fram á íslensku. 

Vinsamlegast skráið þátttöku hér