The Imagine Forum: Protecting Rights

Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs The Imagine Forum fór fram 10.október 2025. Samstarfsaðilar voru utanríkisráðuneytið og Félag Sameinuðu þjóðanna
Upptaka frá ráðstefnunni

Hér er upptaka af ráðstefnunni The Imagine Forum: Protecting Rights - Defending Peace

Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs

Á tímum vaxandi einræðishyggju, hnignunar lýðræðis og bakslags í mannréttindum, þar á meðal kynjajafnrétti og réttindum LGBTQI+ fólks, er brýnt að beina athygli að því hvernig slíkt bakslag ógnar grundvallarforsendum friðaruppbyggingar. Þegar réttindi einstaklinga eru skert og jaðarhópar verða fyrir kerfisbundinni mismunun, grafa stjórnvöld undan trausti, félagslegri samheldni og þátttöku almennings í lýðræðislegum ferlum. Verndun mannréttinda er því lykilforsenda þess að tryggja varanlegan og réttlátan frið.

Aðalfyrirlesarar eru meðal annarra:

🎙️ Nazanin Boniadi – heimsþekkt leikkona og mannréttindafrömuður sem leggur áherslu á réttindi kvenna og tjáningarfrelsi í Íran og víðar

🎙️ Varsen Aghabekian – utanríkisráðherra Palestínu. Aghabekian var skipuð utanríkisráðherra Palestínu í júní síðastliðnum. Skipun hennar er söguleg en hún er fyrsta palestínska konan til að gegna þessu embætti

🎙️ Jessica Stern – fyrrum sérstakur sendifulltrúi Bandaríkjanna í málefnum LGBTQI+ fólks og fræðimaður við Carr-Ryan Center for Human Rights við Harvard Kennedy School

🎙️ Vladimir Kara-Murza – rússneskur blaðamaður og lýðræðissinni sem hefur verið fangelsaður fyrir opinskáa andstöðu sína við einræðishætti og óþreytandi baráttu fyrir pólitísk frelsi

🎙️ Katja Creutz – rannsóknarstjóri við finnsku alþjóðamálastofnunina, FIIA. Sérsvið hennar er alþjóðalög, með áherslu á ábyrgð ríkja, mannréttindi og alþjóðlega stjórnarhætti.

Frekari upplýsingar