9. feb. 2026

Tengsl Indlands og Íslands í breytilegum heimi

Ráðstefna á vegum sendiráðs Indlands í Reykjavík og Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands fór fram þann 25. mars í Norræna Húsinu
Um viðburðinn

Sendiráð Indlands í Reykjavík og Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands buðu til hálfs dags ráðstefnu þann 25. mars þar sem fjallað var um samskipti Indlands og Íslands á umrótatímum á alþjóðavettvangi. Lögð var áhersla á mikilvægi samstarfs Indlands og Íslands í breytilegum heimi og rýnt í tækifæri og áskoranir á sviði öryggis- og varnarmála, tækni og nýsköpunar og viðskipta og menningar.

Ráðstefnan hófst með opnunarávarpi Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra og vefskilaboðum frá Shri Kirti Vardhan Singh, fulltrúa indverska utanríkisráðuneytisins. Bæði lögðu í ræðum sínum áherslu á mikilvægi þess að standa vörð um gildi lýðræðis og réttarríkisins á umrótatímum og að efla tvíhliða samstarf Indlands og Íslands enn frekar á reyndum sviðum, ásamt því að breikka samstarfið.

Advancing Political Dialogue and Strategic Cooperation: India–Iceland Perspectives on Security and Defense

Í fyrsta pallborði ræddu Benedikt Höskuldsson, sendiherra Íslands gagnvart Indlandi, Monty Khanna, Rear Admiral (Retd), Pia Hansson, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands og Valur Ingimundarson, sagnfræðingur við Háskóla Íslands við Þorlák Einarsson, málstofustjóra og sérfræðing á skristofu alþjóðapólitískra málefna hjá Utanríkisráðuneytinu um áskoranir á sviði öryggis- og varnarmála.

India–Iceland Economic Partnership: The Future of Trade and Investment

Í öðru pallborði ræddu Árni Sigurjónsson, yfirlögfræðingur hjá Marel, Helgi Már Björgvinsson, yfirmaður alþjóðasamskipta hjá Icelandair, Mohit Yadav, fulltrúi frá viðskipta- og iðnaðarráðuneyti Indlands og R. Ravindra, Sendiherra Indlands á Íslandi um framtíð viðskipta milli ríkjanna. Umræðum stýrði Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda.

Addressing Global Challenges: Strengthening Bilateral Cooperation in Technology and Innovation

Í þriðja pallborði var fjallað um samstarf á sviði tækni og nýsköpunar. Umræðum stýrði Ólöf Kristjánsdóttir, stjórnarfromaður WomenTechIceland og pallborðið var skipað af Bala Kamallakharan, fjárfesti og stofnanda Startup Iceland, Kristni Inga Lárussyni, sviðsstjóra viðskiptasviðs hjá Carbfix og Payal Shah, stjórnarmeðlim hjá WomenTechIceland.

Fireside Chat: The Role of Culture in Shaping India–Iceland Connections

Í fjórða og síðasta pallborði dagsins var mikilvægi menningar við að móta samskipti ríkjanna undirstrikað. Umræðum stýrði Guðni Bragason, fyrrum sendiherra Íslands gagnvart Indlandi og pallborðið skipuðu Chandrika Gunnarsson, eigandi Austur-Indíafélagsins og viðskiptafrömuður, Einar Falur Ingólfsson, ljósmyndari og rithöfundur og Monalisa Dash, fulltrúi frá AYUSH (Ayurveda, Yoga and Naturopathy, Unani, Siddha, and Homoeopathy) ráðuneyti Indlands.

Að loknu síðasta pallborðinu þakkaði Silja Bára Ómarsdóttir, Rektor Háskóla Íslands þátttakendum kærlega fyrir komuna og flutti lokaorð.

Myndir eftir Tryggva Má Gunnarsson.

Hægt er að horfa á ráðstefnuna í heild sinni hér. Athugið að ráðstefnan fór fram á ensku.