12. júní 2025

Réttlæti og ábyrgð: Vernd barna í Úkraínu

Á þessum opna fundi verður varpað ljósi á mikilvægi ábyrgðarskyldu eftir stríðsátök og spurningum varpað fram um hvernig hægt sé að tryggja réttlæti fyrir úkraínsk börn
Fundurinn verður haldinn föstudaginn 20. júní kl. 12:00-13:15 í Auðarsal Veröld - húsi Vigdísar, Háskóla Íslands

Opinn fundur á vegum Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands, utanríkisráðuneytisins og UNICEF á Íslandi

Innrásarstríð Rússlands í Úkraínu hefur valdið ómældum mannlegum þjáningum og stórfelldri eyðileggingu. Ólöglegt og kerfisbundið brottnám úkraínskra barna á hernumdum svæðum rússneska hersins hefur vakið hörð viðbrögð alþjóðasamfélagsins. Mikilvægt er að ábyrgðarskylda og réttlæti sé tryggð vegna þeirra brota sem Rússland hefur framið.

Stofnsetning tjónaskrár fyrir Úkraínu, sem var ein helsta niðurstaða leiðtogafundar Evrópuráðsins sem haldinn var í Reykjavík í maí 2023, tekur til eignaskemmda, manntjóns og alvarlegra meiðsla sem orðið hafa í stríði Rússlands í Úkraínu. Nú undirbýr tjónaskráin að taka sérstaklega fyrir brot sem framin hafa verið gegn börnum, þar á meðal ólögmætar brottvísanir. Þetta markar mikilvægt skref í að viðurkenna erfiða reynslu yngstu fórnarlambanna í stríðinu og leggja grunninn að framtíðarbótum.

Á þessum opna fundi verður varpað ljósi á mikilvægi ábyrgðarskyldu eftir stríðsátök og spurningum varpað fram um hvernig hægt sé að tryggja réttlæti fyrir úkraínsk börn? Hvað séu sanngjarnar bætur fyrir víðtæk brot sem framin hafa verið? Hvernig ríki og stofnanir geti hjálpað til við að breyta skrásettum tjónum í raunverulegan stuðning fyrir fórnarlömb?

Opnunarorð Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra

Ávörp frá Róberti Spanó, formanni tjónaskrár Evrópuráðsins fyrir Úkraínu og Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, sérstaks erindreka framkvæmdastjóra Evrópuráðsins gagnvart úkraínskum börnum sem jafnframt taka þátt í pallborðsumræðum í kjölfarið ásamt Yuliu Kyrpa, framkvæmdastjóra hjá AEQUO og stjórnarmanni hjá tjónaskrá Evrópuráðsins fyrir Úkraínu og Birnu Þórarinsdóttur, framkvæmdastjóra UNICEF á Íslandi.

Fundarstjóri: Kári Hólmar Ragnarsson, dósent við lagadeild Háskóla Íslands