Öryggisumhverfi Evrópu hefur tekið miklum breytingum. Árásarstríð Rússlands í Úkraínu heldur áfram og óvissa ríkir um skuldbindingar Bandaríkjanna við öryggi í Evrópu. Áframhaldandi hótanir Bandaríkjanna í garð Grænlands hafa ennfremur vakið aðkallandi spurningar um framtíð öryggismála á Norður-Atlantshafi. Fyrir smáríki Evrópu, sem hafa reitt sig á bandalög og skjól stórvelda fremur en hernaðarlegan styrk, er þetta nýr og krefjandi veruleiki.
Á málstofunni verður sjónum beint að því hvernig þessi þróun blasir við Íslandi og öðrum smáríkjum Evrópu, með hliðsjón af sjónarhornum sem birtast í bókinni Security, Defence, and the Future of Europe: Views from the Capitals.
Hvernig hafa smáríki þurft að endurmeta stöðu sína í breyttu öryggisumhverfi? Hvernig bregðast smáríki við vaxandi ógnum og veikingu tengsla yfir Atlantshafið? Hvað geta þau lært hvert af öðru? Og hvaða lærdóm getur Ísland dregið af reynslu annarra evrópskra ríkja sem standa frammi fyrir sömu óvissu?
Pallborðsumræður:
Paul Schmidt, forstöðumaður Austrian Society for European Politics og ritstjóri bókarinnar Security, Defence, and the Future of Europe: Views from the Capitals
Baldur Þórhallsson, prófessor við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands
Vilborg Ása Guðjónsdóttir, alþjóðastjórnmálafræðingur
Hugo Brady, sérfræðingur í stefnumótun við International Centre for Migration Policy Development (ICMPD)
Fundarstjóri:
Pia Hansson, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands
Fundurinn fer fram á ensku og eru öll velkomin.
Vinsamlegast skráið þátttöku hér: https://forms.cloud.microsoft/e/4ATLtHf7UC