Háskóli Íslands býður nú upp á nýtt, opið netnámskeið innan edX-samstarfsins um áskoranir norðurslóða á umbrotatímum þar sem áherslan er m.a. á stjórnkerfi og öryggismál, félags- og efnahagsleg áhrif loftslagsbreytinga og samfélagslega aðlögun að breyttu umhverfi norðurslóða. Sérstök áhersla er lögð á að efla leiðtogafærni þátttakenda og veita þeim hagnýt verkfæri til að miðla rannsóknum sínum á áhrifaríkan hátt. Kennarahópurinn í námskeiðinu samanstendur af fræðimönnum frá Háskóla Íslands, Háskólanum í Tromsø og Grænlandsháskóla.
Námskeiðið ber heitið „Social and Environmental Leadership in the Arctic” og er hluti af ARCADE samstarfsverkefninu sem styrkt hefur verið af Erasmus+ síðustu þrjú ár. Í tengslum við verkefnið hafa áður verið haldin tvö tíu mánaða þverfræðileg námskeið fyrir meistara- og doktorsnema, þar sem lögð var áhersla á að þróa nýstárlegar lausnir við þeim áskorunum sem norðurslóðir standa frammi fyrir. Námskeiðin samanstóðu af þremur staðbundnum vikulöngum námskeiðum á Íslandi, í Noregi og á Grænlandi, fyrirlestrum og vinnustofum sem fóru fram í fjarkennslu og lauk með þátttöku nemenda á Hringborði norðurslóða.
Það er ánægjulegt að tilkynna að hópurinn að baki ARCADE verkefninu hefur nýverið hlotið áframhaldandi styrk frá Erasmus+ til næstu þriggja ár og því er ljóst að áfram verður hægt að bjóða upp á þverfræðileg námskeið um málefni norðurslóða, nú með þátttöku Fróðskapaseturs Færeyja.