Opinn fundur á vegum Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands og sendiráðs Georgíu gagnvart Danmörku og Íslandi
Staða Georgíu á mótum Evrópu og Asíu hefur mótað utanríkisstefnu landsins og öryggishagsmuni. Á þessum opna fyrirlestri fjallar Nata Menabde, sendiherra Georgíu gagnvart Danmörku og Íslandi, um helstu áherslur í utanríkisstefnu landsins, stjórnmálaþróun á svæðinu og þær áskoranir sem móta öryggisumhverfi þess. Þá verður fjallað um samskipti Georgíu við Evrópu og aðra alþjóðlega samstarfsaðila, auk stöðu og hlutverks landsins í öryggismálum svæðisins og á alþjóðavísu.
Fundarstjóri: Hrannar B. Arnarsson, kjörræðismaður Georgíu á Íslandi
Fundurinn fer fram á ensku og eru öll velkomin