Ríkiserindrekstur sem mjúkt vald á stríðstímum

Opinn fundur á vegum Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands, sendinefndar Evrópusambandsins á Íslandi og Úkraínuverkefnis Háskóla Íslands Miðvikudaginn 13. maí kl. 16:00–17:00 á Litla-torgi, Háskóla Íslands
Um fundinn

Oleksiy Gavrysh, sendiherra Úkraínu gagnvart Noregi og Íslandi mun fjalla um reynslu Úkraínu af diplómatískum samskiptum á stríðstímum. Hann mun í erindi sínu byggja á sinni eigin reynslu og ræða hvernig diplómasía breytist við stríðsaðstæður og verður mikilvægari og beinskeyttari. Gavrysh mun einnig varpa ljósi á það sem hann nefnir „harða diplómasíu“ sem einkennist af gagnsæi og hugrekki, þar sem árásir og stríðsglæpir eru kallaðir sínum réttu nöfnum.

Að loknu erindi sendiherrans mun hann taka þátt í pallborðsumræðum þar sem rætt verður um mátt diplómasíunnar, stöðuna í Úkraínu, stuðning Evrópu og leiðir að réttlátum og varanlegum friði.

Dagskrá

16:00–16:05 Opnunarávarp
Silja Bára Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands

16:05–16:20 Aðalfyrirlestur
Oleksiy Gavrysh, sendiherra Úkraínu gagnvart Noregi og Íslandi

16:20–17:00 Pallborðsumræður
Clara Ganslandt, sendiherra Evrópusambandsins á Íslandi
Jón Ólafsson, prófessor í menningarfræði og forsvarsmaður Úkraínuverkefnis Háskóla Íslands
Oleksiy Gavrysh, sendiherra Úkraínu gagnvart Noregi og Íslandi

Fundurinn er opinn öllum, en vinsamlegast skráið ykkur hér.

Boðið verður upp á kaffiveitingar á meðan á fundi stendur. Athugið dagskráin fer fram á ensku.