Loftslagsbreytingar hafa valdið því að norðurheimskautið hitnar þrisvar sinnum hraðar en önnur svæði á jörðinni. Þessi þróun mun leiða til umfangsmikilla breytinga og áskorana á næstu árum og áratugum, sem kallar á samstilltar og metnaðarfullar aðgerðir íslenskra stjórnvalda. Ísland hefur einstakt tækifæri til að vera í fararbroddi þessara breytinga og nýta innlenda þekkingu og hugvit til að takast á við áskoranirnar sem loftslagsbreytingar bera í skauti sér. Umtalsverð þekking er til staðar hjá íslenskum háskólum um málefni norðurslóða, en auka þarf samstarf á milli allra háskóla hérlendis svo fullnýta megi þau tækifæri sem eru til staðar og tryggja að íslenskir rannsakendur og sérfræðingar komi þekkingu sinni á framfæri í alþjóðlegu samstarfi.
Verkefnið miðar að því að skipuleggja fjórar þematengdar vinnustofur með þátttöku innlendra rannsakenda, annars vegar á Akureyri og hins vegar í Reykjavík. Markmiðið með verkefninu er að styrkja norðurslóðasamsamstarf hérlendis og efla sókn innlendra aðila í alþjóðlega samkeppnissjóði. Með aukinni samvinnu og sameiginlegu átaki mun íslenska rannsóknarsamfélagið geta lagt enn stærra og öflugra framlag til alþjóðlegs vísindasamstarfs og þannig stuðlað að lausnum sem taka mið af sérstökum áskorunum og tækifærum norðurslóða.
Lögð verður sérstök áhersla á eftirfarandi viðfangsefni í vinnustofunum:
Markmið verkefnisins eru að:
Verkefnið er fjármagnað af samstarfssjóði háskóla á vegum Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins.
Fyrsta vinnustofa verkefnisisn um rannsóknir og tækifæri á sviði aðlögunar að loftslagsbreytingum fór fram í Háskóla Íslands 27. maí 2025. Markmiðið með vinnustofunni var að skapa opinn vettvang fyrir samtal um helstu þekkingargöp og rannsóknargetu hérlendis á málefnasviðinu auk þess að efla vísindasamstarf innanlands og styrkja sókn íslenskra aðila í erlenda samkeppnissjóði. Vinnustofan var unnin í samstarfi vð Loftslagsráð. Alls sóttu um fimmtíu fulltrúum frá öllum háskólum og helstu rannsóknarstofnunum á Íslandi vinnustofuna.
Samantekt:
Dagskrá vinnustofunnar byggði á blöndu af erindum og vinnuhópum. Elín Björk Jónasdóttir, sérfræðingur á skrifstofu loftslags- og náttúru hjá Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu fór yfir aðgerðir og næstu skref á sviði aðlögunar að loftslagsbreytingum. í kjöfarið fór Halldór Björnsson, formaður vísindanefndar um loftslagsmál yfir áskoranir og framlag rannsókna á málefnasviðinu. Þá fóru þau Björg María Oddsdóttir, Egill Þór Níelsson og Svandís Ósk Símonardóttir, sérfræðingar á rannsókna- og nýsköpunarsviði Rannís yfir styrkjamöguleikar í lofslagsrannsóknum.
Háskólasamfélagið kynnti fjölbreytt verkefni tengd aðlögugun að loftslagsbreytingum á ólíkum fræðasviðum,frá lögfræði og náttúruvísindum til hönnunar og líffræði. Fulltrúar frá Háskólanum á Bifröst, HÍ, HR, Landbúnaðarháskólanum, Listaháskólanum, Háskólasetri Vestfjarða, Hólum og Háskólanum á Akureyri kynntu verkefni sín.
Í kjölfar kynninga hófst vinna í vinnuhópum þar sem þátttakendur tóku þátt í hugarflugi og greiningu á lykilspurningum. Í vinnuhópunum var eftirfarnadi spurningum velt upp:
Hvar vantar okkur meiri þekkingu og frekari gögn? Hvað hefur gengið vel og hvað ber að varast? Hver eru áskoranir og tækifæri til framtíðar?
Að lokum kynnti Gunnar Stefánsson, aðstoðarrektor Vísinda hjá Háskóla norðurslóða (UArctic) hlutverk og framtíðarsýn UArctic og möguleika Íslands til þátttöku í alþjóðlegu samstarfi á sviði loftslagsrannsókna.
Nánari upplýsingar um vinnustofuna má finna hér.
Vinnustofa um málefni hafsins og alþjóðlegt vísindasamstarf fer fram þriðjudaginn 23. september 2025. Markmiðið með vinnustofunni er að skapa opinn vettvang fyrir samtal um helstu áskoranir og rannsóknargetu hérlendis um málefni hafsins, efla vísindasamstarf og styrkja sókn íslenskra aðila í erlenda samkeppnissjóði.
Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Norðurslóðanet Íslands og Rannís standa að vinnustofunni sem er önnur í röð fjögurra vinnustofa verkefnisins Sterkari staða norðurslóðarannsókna á Íslandi. Vinnustofuröðin miðar að því að efla samtal og samráð rannsóknarumhverfisins hérlendis um málefni norðurslóða og er fjármagnað af samstarfssjóði háskóla á vegum Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins.
Vinnustofan fer fram í Hátíðarsal Háskólans á Akureyri, 23. september frá kl. 8:30–16:00. Dagskrá og nánari upplýsingar verða birtar síðar. Vinnustofan fer fram á íslensku og er nú opið fyrir skráningu fyrir fulltrúa frá háskólum og rannsóknarstofnunum á Íslandi og skráning fer fram hér hér.