Markmið fundarins er að efla upplýsta umræðu um hlutverk Atlatshafbandalagsins og samspil varnarmála, tækni og nýsköpunar á tímum aukinnar óvissu í alþjóðamálum. Fundurinn er hliðarviðburður við hakkaþoni á vegum Atlantshafsbandalagsins (TIDE Hackathon NATO Allied Command Transformation, ACT).
Sérstök áhersla verður lögð á lausnir með tvíþætt notagildi (e. dual-use), fjölþáttaógnir og tengsl borgaralegrar tækniþróunar og öryggissjónarmiða. Á fundinum verður jafnframt fjallað um áhrif breyttrar heimsmyndar á nýsköpunarumhverfi á Íslandi, sem og samfélagslegar og siðferðislegar áskoranir hraðrar tækniþróunar í óstöðugu alþjóðlegu umhverfi.
Fundurinn er vettvangur fyrir samtal milli stjórnvalda, fræðasamfélags og atvinnulífs um hvernig Ísland bregst við nýjum veruleika í alþjóðlegu öryggisumhverfi.
ACT er herstjórn innan NATO sem ber ábyrgð á framtíðarþróun bandalagsins, þar á meðal nýsköpun, rannsóknum og þróun þekkingar á sviði öryggis- og varnarmála. Á fundinum verður fjallað um hlutverk háskóla og rannsóknarsamfélags í þessu samhengi og þau tækifæri sem felast í auknu alþjóðlegu samstarfi.
Hakkaþonið TIDE verður haldið í Mýrinni í Grósku dagana 23. – 27. febrúar og leiðir saman sérfræðinga úr varnarmálum, tækni, gervigreind, netöryggi og nýsköpun til að þróa hagnýtar lausnir við raunverulegum áskorunum Atlantshafsbandalagsins.
Dagskrá
09:00-09:05 - Pia Hansson, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands, býður gesti velkomna
09:05–09:20 - Opnunarerindi, Patrick Ratier, yfirmaður borgaralegrar alþjóðadeildar NATO ACT og fyrrum varnamálafulltrúi Frakklands gagnvart Íslandi
09:20–10:05 - Pallborðsumræður
Sóley Kaldal, áhættustýringar- og öryggisverkfræðingur, Þorvarður Sveinsson, framkvæmdarstjóri Farice, Bjarki Þór Sigvarðsson, fagstjóri yfir ástandsvitund hjá CERT-IS og Jón Geir Pétursson, prófessor í umhverfis- og auðlindafræði.
Málstofustjóri er Bjarni Bragi Kjartansson, alþjóðastjórmálafræðingur.
10:05–10:15 - Lokaorð, Silja Bára Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands
Fundurinn fram á íslensku, að undanskildu erindi Patrick Ratier
Boðið verður upp á léttar veitingar frá kl 8:30
Öll velkomin. Vinsamlegast skráið þátttöku hér
https://forms.office.com/e/7Rr1VCHjG9