24. April 2026

Átökin í Mið-Austurlöndum: Baráttan um framtíðina

Open Seminar: Tuesday 28 April from 16:00-17:00 at the Nordic House
Átökin í Mið-Austurlöndum: Baráttan um framtíðina

Þriðjudaginn 28. apríl kl. 16:00-17:00 í Norræna húsinu

Opinn fundur á vegum Alþjóðamálastofnunar og Guðfræði- og trúarbragðastofnunar Háskóla Íslands

Átökin í Mið-Austurlöndum: Baráttan um framtíðina

Magnús Þorkell Bernharðsson, prófessor í sagnfræði við Williams háskóla í Bandaríkjunum og einn fremsti sérfræðingur Íslands í málefnum Mið-Austurlanda fjallar um stöðu mála fyrir botni Miðjarðarhafs og í Persaflóanum

Áleitnar hörmungarfréttir berast nú nær daglega frá Mið-Austurlöndum. Í þessum fyrirlestri verður staðan í þeim átökum sem nú eiga sér stað fyrir botni Miðjarðarhafs og í Persaflóanum metin og skoðuð sérstaklega út frá stjórnmála-og trúarbragðasögu Mið-Austurlanda. Af hverju hefur staðan þróast á þennan veg? Hvað er í raun og veru í gangi? Hvaða breytingar eru að eiga sér stað? Hvernig er baráttan háð? Hvert er hlutverk trúarbragðanna? Og hver er líkleg niðurstaða þessa stríðs, ef einhver?

Fundarstjóri: Birta Björnsdóttir, yfirmaður erlendra frétta hjá RÚV

Fundurinn fer fram á íslensku og er opinn öllum.