16. March 2026

Alþjóðamálastofnun og Höfði friðarsetur tóku þátt í sjötugasta fundi Kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna (CSW)

Alþjóðamálastofnun og Höfði friðarsetur tóku þátt í sjötugasta fundi Kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna (CSW) í New York í síðustu viku og stóðu meðal annars fyrir hringborðsumræðum um konur, frið og öryggi.
Kvennanefndarfundurinn einkenndist af nokkrum ágreiningi

Á fundinum í ár var lögð áhersla á aðgerðir til að tryggja og styrkja jafnan aðgang kvenna og stúlkna að réttarkerfinu. Þar var meðal annars rætt um umbætur á málsmeðferð, lagabreytingar til að uppræta mismunun og leiðir til að bregðast við kerfislægum hindrunum sem konur og stúlkur standa frammi fyrir.

Kvennanefndarfundurinn einkenndist af nokkrum ágreiningi um orðalag í niðurstöðuskjali fundarins en að lokum var skjalið samþykkt með 37 atkvæðum gegn einu. Bandaríkin greiddu atkvæði á móti eftir að hafa lagt fram breytingartillögur, meðal annars varðandi orðalag um kynvitund, kyn- og frjósemisheilbrigði og reglur um gervigreind.

Á tímum vaxandi spennu í alþjóðakerfinu og bakslags í réttindabaráttu kvenna hefur aldrei verið mikilvægara að standa vörð um þau réttindi sem hafa áunnist. Eins og Malala Yousafzai lagði áherslu á í ræðu sinni “If our commitment to girls’ rights depends on politics, then it is not a commitment at all.”

A New Narrative for Peace: Advancing Security Through Women’s Leadership

Stofnanirnar stóðu fyrir hliðarviðburðinum „A New Narrative for Peace: Advancing Security Through Women’s Leadership“, í samstarfi við Georgetown Institute for Women, Peace and Security, UN Women og utanríkisráðuneyti Íslands. Um var að ræða lokaðar hringborðsumræður þar sem lögð var áhersla á mikilvægi þess að standa vörð um ályktun öryggsráðs SÞ 1325 um konur, frið og öryggi.

Á tímum aukinna átaka, hervæðingar og bakslags í jafnréttismálum var viðburðurinn vettvangur fyrir sérfræðinga og hagaðila víðs vegar að úr heiminum til að ræða hvernig efla megi konur í friðaruppbyggingu, sáttamiðlun og öryggismálum í takt við ályktun öryggisráðs SÞ 1325. Viðburðurinn var fyrsti viðburður af tveimur, en áætlað er að halda aðrar hringborðsumræður í Reykjavík í haust. Afrakstur fundanna verður skýrsla þar sem helstu ráðleggingar og lausnir verða dregnar saman og útfærðar í hnitmiðaðar aðgerðir sem nýtast geta stjórnvöldum, stofnunum og grasrótarhreyfingum við að styrkja þátt kvenna í friðar- og öryggismálum.